Hótel Leifur Eiríksson
Hótel Leifur Eiríksson
Staðsetning
Veitingastaðir
Söfn og leikhús
Verðskrá
Skoða myndband
VIDEO FROM THE VOLCANO


Hotel Leifur Eiriksson
Skolavordustigur 45,
101 Reykjavik, Iceland.
Tel: 00354 562 0800
Fax: 00354 562 0804
info@hotelleifur.is

Language selection
  • English
  • Icelandic
  • Danish
icelandic_excursion.jpg 
Indian Mango

tours.jpg

procar.jpg
Velkomin á Hótel Leif Eiríksson!

ImageHótel Leifur Eiríksson er í virðulegu húsi í gamla miðbænum. Það stendur við Skólavörðustíg sem er ein vinsælasta gata borgarinnar með miklum fjölda gallería og verslana. Beint á móti hótelinu er hin stórfenglega Hallgrímskirkja, þekktasta tákn Reykjavíkur.

Herbergin okkar eru fjörutíu og sjö talsins. Þau eru öll búin síma, útvarpi, gervihnattarsjónvarpi og baðherbergi með sturtu. Allan sólarhringinn er hægt að panta drykki og léttar veitingar og morgunverðarhlaðborð er innifalið í gistingu.

ImageHótelið og umhverfi þess taka þér fagnandi á öllum árstímum og óvíða er Reykjavík jafnhlýleg og lifandi og einmitt hér. Starfsfólk Hótels Leifs Eiríkssonar gjörþekkir Reykjavík. Hjá okkur færðu upplýsingarnar sem þú þarft til að dvöl þín verði ógleymanleg.

Hótelið okkar er fjölskyldurekið og ekki hluti af hótelkeðju. Við komum til móts við þínar þarfir – hvort sem þú ert í slökunar, - verslunar- eða viðskiptaferð eða að njóta þess fjölmarga sem Reykjavík hefur upp á að bjóða.
 
Við hlökkum til að sjá þig!

 
top